Sprengur.is
Sprengur.is er fyrir þá sem þjást af blöðruvandamálum, t.d. tæmingarerfiðleikum, þvagleka eða ofvirkri þvagblöðru. Hér á síðunni má nálgast upplýsingar um hvað er hægt að gera sjálf/sjálfur til að ná aftur stjórn á þvagblöðrunni og þannig að bæta lífsgæðin.
Hvað er ofvirk þvagblaðra?
Ofvirk þvagblaðra nær ekki að slaka á og veldur það:
- Skyndilegri og sterkri þvaglátsþörf
- Tíðum salernisferðum
- Erfiðleikum við að halda í sér – helmingur upplifir að missa þvag eða að það dropi í buxurnar
Smellið hér fyrir þvaglátaskrá
Hvaða áhrif hafa blöðruvandamál á einstaklinginn?
- Einkenni ofvirkrar þvagblöðru geta leitt til þess að þau stjórna bæði þér sjálfum og daglegum athöfnum. Því er mikilvægt að leita sér hjálpar hjá lækni
- Annar hver einstaklingur upplifir að vandamál sem tengjast blöðrustarfsemi hafi áhrif á einkalíf og lífsgæði (49%)
- Tveir af hverjum þremur hafa áhyggjur af því að lykta af þvagi (61%) og að missa þvag (67%)
- 41% skammast sín og finnst blöðruvandamálin vera vandræðaleg
- 29% eru með minna sjálfstraust vegna blöðruvandamála
- Einn af hverjum þremur upplifir að blöðruvandamálin dragi úr ástundun kynlífs(31%) og einn af hverjum fjórum segist eiga í erfiðleikum með að vera náinn maka sínum(24%)
- Einn af hverjum þremur þorir ekki að ræða blöðruvandamálin
Smelltu hér og lestu meira um ofvirka þvagblöðru á dönsku heimasíðunni www.blaeren.dk og hvernig þú getur leitað þér hjálpar